21.4.2011 | 23:40
Eru Konungsbornir orðnir hirðfífl fíflana?
Ég get bara ekki skilið hvernig þessi kónga-, keisara-, fursta stefna mannfólksinns sé enn við lýði í nútímasamfélagi og að það séu til grey sem hafa gaman af þessu t.d. þessi sirkus sem er í uppsiglingu bretlandi....
Ég sé engann mun á þessari persónudýrkun hvort það sé Lady gaga eða king of gaga....
|
Ferðamenn streyma til Lundúna |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
12.4.2011 | 00:08
Lög eiga aðlagast manninum en ekki öfugt
Hvar er skjaldborgin sem lofað var ? eða eitthvert annað af loforðum ríkistjórnarinnar.
við megum ekki vera sofandi á verðinum gagnvart þessu frumvarpi
|
Undirskriftir gegn fjölmiðlalögum |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
5.7.2009 | 09:49
Freedom fries.
Gæti gubbað við að lesa þessa frétt...
Eftir innrás bandaríkjana í Írak, þurfti bandaríkin endilega að fá opinbera stuðningsyfirlýsingu frá vestrænum þjóðum. Á þessum stríðsviðurkenningalista skráðu að meira að segja nokkrir íslendingar sem ákváðu fyrir 300.000 manns að við studdum stríðið....
Frakkar gerðu það hins vegar ekki og gagngrýndu bandaríkin fyrir yfirgangslega hegðun.
Í kjölfarið tóku flestir ameríkanar að kalla french friece, freedom fries eins og lítill krakki í frekjukasti, bara til að losna við Frakkland úr einni mest notuðu neysluvöru landsins s.s.frönsku kartöflurnar
Mér fynnst að frelsisstyttan hefði átt að vera á hjólum svo væri hægt að draga hana til baka því það virðist ekki vera neitt frelsi í bandaríkjunum. fólk er heilaþvegið af stjórnvöldum og imbakassanum, öfgatrúað á hinn heilag jesús krist, en fattar ekki að þau sjálf eru ekkert skárri en muhamedstrúar nema bara í þveröfuga átt.
hér er dæmi um hvernig kanarnir tóku mótlæginu frá frökkum=
http://video.google.com/videoplay?docid=-2597364437217728231
bwhahaha .... heimskulegt. en þannig vilja stórnvöld vestrænna ríkja hafa það. almúginn sauðheimskur og að allir éti upp allt sem birt er í tv-inu.
Við íslendingar stefnum í að vera jafn heilaþvegin af innlendum fjölmiðlum, sem apa eftir amerískum og breskum fjölmiðlum. því öll erum við forritanleg og með því að trúa eitthverju sem okkur er sagt af yfirvaldinu í fjölda mörg ár, saga sem sögð er af sigurvegarinum og engar aðrar hliðar eru teknar til greina. ef manneskja véfengir atburðarrás= WW2, Vietnam, 9:11 o.fl eru þeir taldir snarbilaðir og almúginn blokkar algerlega á að það, að það eru duglega mikklar líkur á að heimurinn er ekki eins og hann er séður,
hámark hræsninar er að eina þjóð jarðarinnar sem hefur beitt kjarnavopnum gegn mannkyninu í japan. er þarna að ráðast inn á aðra þjóð vegna órökstuðs gruns um að kjarnavopn séu til staðar..... og allir nema frakkar réttlæta glæpinn...sem sagt grimmasta þjóð hnattarinns er í einkarétti á að myrða aðra með geislavirkni, meðan stuðningsþjóðir kanana eru sem staurblindir, þykjast ekkerð skilja né vita???????..... heimskulegur heimur sem við lifum í....
|
Frelsisstyttan opnuð eftir 11. september |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Spaugilegt | Breytt s.d. kl. 10:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.6.2009 | 05:31
Eiturlyfjadóp!!!!
Nú til dags eru þegnar vestrænna ríkja forituð með fordómum og hræðslu gagnvart eiturlyfjum og er skrattinn málaður um alla veggi þegar fjölmiðlar ræða um slíkt.
Þarna er Jackson(R.I.P. mikkli listamaður) að taka inn lyf(heroin,morfin,valium) sem eru flokkuð undir hætturlegustu eiturlyf, og takið eftir, aðeins ef eitthver framleiðir þau annar en lyfjaframleiðendur, þá er það löglegt og samkvæmt forritununni lýta flestir á það öðrum augum heldur enn hafi hann verslað sömu efni af skuggasveini í dimmu húsasundi.
fynnst okkur virkilega það bara allt í lagi ef lyfjaframleiðendurnir framleiði eiturlyf og eins og fjölmörg dæmi sýna eru þeir að múta læknum á margvíslegan hátt til að skrifa upp á eitrið sitt og fá þá til að fullvissa sjúklinga um ágæti þess?
Morfinskild lyf eru ekki þau einu stórhættulegra eiturlyfja sem eru gooderuð einungis ef lyfjaframleiðandi á í hlut
á sama tíma er cannabis stranglega bannað og flokkað undir eiturlyf og áfengi er selt sem "gleðivímugjafi" út um allt, sem er hreynt óskyljanlegt.
Eiturlyf, samkvæmt skilgreiningunni, eru lyf sem valda eitrun sem getur leytt dauða.
Dauðsföll vegna áfengis= þúsundir á ári.
Dauðsföll vegna cannabis= eingin frá upphafi mannsskepnunar
Hvort ætti að vera flokkað sem eiturlyf? Eru kanski flestir íslendingar eiturlyfja notendur? einungis er um 80 ár frá því að mannskepnan fór að banna náttúruna( þ.a.s. cannabis. sem er planta sem engir vísindamenn hafa átt við og hass er búið til með því að sigta thc kristalla blómsins í gegnum striga,baka við lágan hita og pressa( tek það fram einungis vegna þess að flestir halda að hass sé unnið á vafasaman hátt og halda menn séu að eiga eitthvað við efnin til að gera þau skaðlegari. ENGU ER VIÐ BÆTT. 100% NATURE))
Í gegnum söguna hefur cannabis fylgt mannskepnuni nánast frá upphafi en áfengi hefur þekkst aðeins brot af þeim tíma. við neyslu kannabis efna er erfiðara að forrita þig og sýn frá fjölmorgum sjónarhornum birtist.(þá sérstaklega um kosti cannabis og cannabis afurða)
cannabisplantan er kraftmikil planta í vexti, svipuð og lúpina, þannig ef x-mikið landsvæði er notað í ræktun myndi afurðir þess vera margfalt ef ekki hundrað fallt á einu ári, miðað við aðrar iðnaðarnytjaplöntur. (bómull, viður. o.fl) Ford bílaframleiðandinn framleiddi bíl sem gékk fyrir metanoli framleitt úr cannabis og einnig plastbretti.
Enn allaveganna vildi ég benda á fáranleika nútíma siðferði og réttlætiskend, og sýna fram á að flestir eru heilaþvegnir, fordómafullir og þröngsýnir í þágu stjórnvalda sem beita besta vopni sem til er: fjölmiðlar í allri sinni merkingu.....
þar sem ég á erfitt með svefn ætti ég kanski að fara til læknis og fá mér svefnpillur :)
|
Jackson líkt við Önnu Nicole |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
18.6.2009 | 19:17
Ég ættla að taka út 15000 kall vangefna beljan þín
Gaman væri ef íslensku bankarnir myndu taka upp á þessu....
Og sá sem kæmi með mestu ósvífnina fengi skuldir sínar afskráðar og að fúkyrðin yrðu slagorð bankans.
Enn gallin er sá að greyið gjaldkerarnir myndu þá yfir sig óhróður sem það ætti kanski ekki allveg skylið.. en þau gætu látið það berast til yfirmanna sinna =)
|
Láttu mig fá bjór vangefni nefapinn þinn! |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
16.6.2009 | 00:31
Eins manns dauði, annars brauð
Ef ég ætti heima þarna þá ætti ég ekki efni á því að deyja =)
|
Sífellt dýrara að deyja |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
5.6.2009 | 02:12
Jahérnahér......
Mín upplifun á íslenskum femenisma er sú að íslenskar rauðsokkur eru ekki að berjast fyrir jafnrétti heldur forréttindum. slæmt fyrir þær en svona lagað skemmir fyrir þeim en nokkurt annað.
Eina sem ég hef lært af "stormnum í glasinu,, er að, ef ég stofna sprotafyrirtæki þá munu bæklingar fyrirtækisinns líta nokkurnveginn svona út.
Ef femenistafélag Íslands myndu manna allar stöður í alþingi og ráðuneitum þá væri 25000kr typpaskattur undir 15 cm og svo 1500 kall á hvern cm. hagkaupsbæklingurinn yrði ritskoðaður og eftir yrði bara leikföng og barnaföt. Sund-landsliðið keptu í lopasamfestingi og fjallkonan klæðast snjógalla.
Ég sem, algert karlrembusvín, held að ólýsanlegur máttur fallegra kvenna á alla karlmenn fari í taugarnar á öðrum konum... Meina það er ótrúlegt hvað kona kemst langt á fegurðinni einni saman. en aðvitað eru ekki allar konur með jafn mikinn ævintýralegan sjarma. Þarna tekur maður eftir gremju og öfund í lélegu formi femenisma.
Til hamingju Poulsen fyrir vel hepnaða auglýsingaherferð : )
|
Ósátt við auglýsingabækling |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
15.5.2009 | 05:19
Frá jafnréttissjónarmiðum.. uhhh...já
Ef við lítum á það frá heilsufarslegum sjónarmiðum þá stafar áhætta á líkamlegu tjóni jafnt og sígarettur og áfengi.
Ástæðan fyrir skattlaggningu er neyslustýrandi og tilgangurinn er að fá smá pening til að meðal annars að dekka sjúkrakostnað og eflaust er helling afgangs..
Með því að skattleggja sykur væri kominn grundvöllur fyrir því ríkisvæða tannheilbrigðiskerfið og að bæði börn og fullorðnir fái þjónustu á mannsæmanlegu verði.
Best væri að sandkassapartýið á Austurvelli færi að ljúka og menn fari að beyta sér að alvarlegari hlutum
|
Sykrað gos skattlagt? |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Spaugilegt | Breytt s.d. kl. 05:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
22.11.2008 | 17:54
Bíddu...ha?
Enn og aftur fynnst mér feministar hafa skotið of hátt...
"Dæmin víða um heim sýna að í kreppuni hefur mest kapp verið lagt á það að tryggja karlmönnum atvinnu með ýmiskonar framkvæmdum á vegum ríkisins."
Hvað er átt við með því... væntalega er verið að tala um verkefni sem eru iðnaðar- og verkamanna tengd s.s. vegavinna, byggingarframkvæmdir, og fleirra í þeim dúr..... síðars þegar ég vissi er kvennmönnum ekki meinaður aðgangur að þessum störfum og í tækniskólanum eru kvennmenn í algerum minnihluta í iðngeinum. (nánast hægt að telja fingrum annarar handar) Einnig er sama upp á teningnum í sjálfu atvinnulífinu Þ.S. í iðngreinum.
Hvað vilja þær að ríkistjórn geri? opni hárgreiðslustofur, fatabúðir, fasteignasölur eða eitthvað annað sem eingin þörf er á á krepputímum...
Núna þarf fólk að starfa við það sem þeim býðst.
Ást og friður.... það eina sem við eigum skuldlaust 
|
Neyðarstjórn kvenna klæddi Jón |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |




creel
brjann
evaice
zeriaph
jenfo
johannesthor
jaj
jonl
prakkarinn
ludvikludviksson
nimbus
spurs
thorthunder
thorsteinnscheving




